{"id":4387,"caseNumber":"240/2026","name":"Drög að frumvarpi til laga um velferð dýra","shortDescription":"Með frumvarpinu eru lögð til ný heildarlög um velferð dýra.","detailedDescription":"Með frumvarpi til laga um velferð dýra er lagt til að ný heildarlög taki gildi um velferð dýra sem komi í stað laga gildandi laga um velferð dýra nr. 55/2013. Markmið með frumvarpinu er að setja styrkari lagastoð fyrir aukna velferð dýra, gera stjórnsýsluframkvæmd skýrari og færa lögin meira til samræmis við samtímann en gildandi lög um velferð dýra hafa ekki sætt heildarendurskoðun frá gildistöku þeirra þann 1. janúar 2014.\n\nHelstu breytingar varða m.a. að í markmiðsákvæði laganna verði lögð aukin áhersla á velferð og virðingu fyrir dýrum sem skyni gæddum verum. Í stað fagráðs samkvæmt gildandi lögum komi dýravelferðarráð auk nefndar um dýr sem notuð eru í vísinda- og/eða menntaskyni. Þá felur frumvarpið í sér að aukin krafa sé gerð um hæfni og getu þeirra sem sinna dýrum og að unnt sé að sýna í verki að dýrum sé sinnt með fullnægjandi hætti. Þá skal eftirlit Stofnunar atvinnuveganna vera reglulegt og í samræmi við áhættu og áhættuflokkun að teknu tilliti til niðurstaðna úr eftirliti stofnunarinnar. Þá skal eftirlit almennt að vera óboðað en ef eftirlitið sé boðað þá skuli það gert með eins skömmum fyrirvara og unnt er. Undanþáguákvæði gildandi laga um að ekki sé þörf á að deyfa, svæfa dýr eða veita því verkjastillandi meðhöndlun þegar um er að ræða eyrnamörkum lamba og kiðlinga yngri en vikugamalla verði fellt brott og með því verði eyrnamörkun einungis heimil undir deyfingu.  Þá verði undanþáguákvæði sem heimilar drekkingargildrur minnka fellt brott. Sérstakur kafli komi inn í lögin varðandi vernd dýra sem notuð eru í vísinda- og/eða menntaskyni, sbr. reglugerð nr. 460/2017 um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni, sem felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/63/ESB frá 22. september 2010 og hagsmunasamtök um velferð dýra fái afmarkaða aðkomu að slíkum málum. Einnig verði lagt bann við dýraklámi með sérstöku ákvæði. Þá verði aukið við heimildir Stofnunar atvinnuveganna varðandi aðgang að útihúsum, gripahúsum og öðru húsnæði þar sem dýr eru haldin og ekki er nýtt til íbúðar að því marki sem nauðsynlegt er vegna eftirlits við dýrahald.  Einnig verði ákvæði um þvingunaraðgerðir gerð skýrari og lagt er til að við vörslusviptingu verði lögð aukin áhersla á að reynt sé að finna dýrum annað athvarf og aflífun eða slátrun dýra sé síðasta úrræðið. Þá verði aukið við heimildir Stofnunar atvinnuveganna til að grípa inn í aðstæður þegar úrbætur þola ekki bið svo sem þegar dýr eru í reiðuleysi og fyrirséð er að aðstæður, aðbúnaður eða umhirðuleysi muni í framhaldi valda þeim skaða. Þá eru stjórnvaldssektir eru hækkaðar og ákvæði varðandi refsiábyrgð verði útvíkkuð.\n\nVið undirbúning frumvarpsins var m.a. litið til ábendinga í skýrslu Ríkisendurskoðunar til Alþingis um stjórnsýsluúttekt á eftirliti Matvælastofnunar með velferð búfjár frá nóvember 2023. Auk þess var litið til umsagna sem bárust í Samráðsgátt árið 2024 þegar frumvarpsdrög, þar sem tekið var tillit til ábendinga Ríkisendurskoðunar, voru í opnu samráði á Samráðsgátt stjórnvalda en frumvarpsdrögin voru ekki lögð fram á Alþingi. Einnig var litið til ábendinga og athugasemda sem bárust þegar áform um lagasetninguna voru kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda í september 2026 en auk þess hefur verið haft samráð við Matvælastofnun við ritun frumvarpsins.\n\nHér með er óskað eftir umsögnum, athugasemdum og ábendingum um frumvarpsdrögin.\n","contactName":"Skrifstofa landgæða og dýraheilsu","contactEmail":"atrn@atrn.is","statusName":"Til umsagnar","institutionName":"Atvinnuvegaráðuneytið","typeName":"Drög að frumvarpi til laga","policyAreaName":"Landbúnaður","processBegins":"2026-11-20T00:00:00","processEnds":"2026-12-04T23:59:59","announcementText":"","summaryDate":null,"summaryText":null,"summaryLink":null,"summaryDocumentId":null,"adviceCount":5,"advicePublishTypeId":1,"allowUsersToSendPrivateAdvices":false,"advicePublishTypeName":"Birt jafnóðum og þær berast","created":"2026-11-20T12:32:02.193","changed":"2026-11-20T13:37:15.773","oldInstitutionName":null,"extraStakeholderList":"","publishOnWeb":"2026-11-20T12:43:16.353","stakeholders":[{"name":"Dómsmálaráðuneyti"},{"name":"Umhverfis- og auðlindaráðuneytið"},{"name":"Umhverfisstofnun"},{"name":"Náttúruverndarstofnun"},{"name":"Náttúrufræðistofnun"},{"name":"Landhelgisgæsla Íslands"},{"name":"Matvælastofnun"},{"name":"Neyðarlínan"},{"name":"Almannavarnir"},{"name":"Samband ísle. sveitarfélaga"},{"name":"Bændasamtök Íslands"},{"name":"Skotveiðifélag Íslands"},{"name":"Dýraverndarsamband Íslands"},{"name":"Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum"},{"name":"Samtök um dýravelferð á Íslandi"},{"name":"Dýraverndunarfélagið Villikettir"},{"name":"Landssamband lögreglumanna"},{"name":"Samtök fyrirtækja í landbúnaði (SAFL)"},{"name":"Dýralæknafélag Ísland"},{"name":"Hreindýraráð"},{"name":"Æðarræktarfélag Íslands"},{"name":"Innviðaráðuneyti"},{"name":"Lögreglustjóri á Austurlandi"},{"name":"Lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu"},{"name":"Lögreglustjóri á Norðurlandi eystra "},{"name":"Lögreglustjóri á Suðurlandi"},{"name":"Lögreglustjóri á Suðurnesjum"},{"name":"Lögreglustjóri á Vestfjörðum"},{"name":"Lögreglustjóri í Vestmannaeyjum "},{"name":"Lögreglustjóri á Vesturlandi"},{"name":"Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra"}],"documents":[{"id":"e230d5b1-dee4-f111-9be2-005056bcce7e","description":"Drög að frumvarpi til laga um velferð dýra","link":null,"fileName":"Drög að frumvarpi til laga um velferð dýra - heildarendurskoðun.pdf","fileType":"application/pdf","size":687105}],"additionalDocuments":[],"relatedCases":[{"id":4322,"caseNumber":"175/2026","name":"Áform um lagasetningu - endurskoðun á lögum um velferð dýra nr. 55/2013"}]}